hvað er eyjar69
jú það er árgangur 69 sem naut þess að alast upp í Vestmannaeyjum. og eru sumir en að njóta þess á meðan öðrum hefur verið sleppt eins og hverri annari lundapisju. og eru þau tímamót aftur og en komin að árgangur þessi ætlar að hittast hér í Eyjum og skemmta sér í eina helgi eða svo. mikill áhugi og jákvæðir straumar fylla fólk eins og okkur af tilhlökkun.
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
25.09.2008 20:29:48 / eyjar69

hehehe

Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo stuttermabolinn sinn.  Hann er varla kominn inn í þvóttahús þegar hann kallaði á mig ; á hvaða stillingu set ég þvottavélina, elskan?
Það fer eftir því hvað stendur á bolnum, kallaði ég til hans á móti
;Húsasmiðjan!!! Gargaði hann
Og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar........

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 20:24:52 / eyjar69

smá grín

  Draumur hverrar konu

Kona eins sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag, þegar hrikalega myndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn.  Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að stara áhann.
Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni, gekk beint til hennar og sagði:Ég skal gera HVAÐ SEM ER hversu afbrigðilegt það er fyrir 2000 kall, en með einu skilyrði. Orðlaus af undrun spurði konan hvað þetta skilyrði væri. Ungi maðurinn svaraði; þú verður að segja mér hvað þú vilt að ég geri í aðeins 3 orðum. Konan hugsaði tilboð hans í  smá stund, byrjaði svo að telja peningana upp úr buddunni sinni og rétti  unga manninum. Hún horfði djúpt í augu hans og hægt og rólega sagði hún
ÞRÍFÐU HÚSIÐ MITT!!!!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 12:38:31 / eyjar69

myndir

Nú þurfa allir að setja myndir inn á síðuna, það voru allir að taka myndir og nú er um að gera að skella þeim inn á.

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2008 15:08:33 / eyjar69

Takk Fyrir

Vildi bara þakka öllum sem létu sjá sig á árgangsmótinu fyrir skemmtilega helgi. (Basti er ekki kominn ennþá) Gaman að sjá fólk sem ég hef ekki séð langa lengi eins og Bettý og Önnu Katrínu.  Vonandi höldum við þessari síðu vakandi áfram, ég ætla að setja inn einhverjar myndir fljótlega og vonandi gera fleiri það sama.  Takk fyrir frábæra helgi.

» 19 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 22:56:37 / eyjar69

jæja

Þá er komið að því, að láta vita hvað við ætlum að gera um helgina og hvar.
Eins og þið vonandi vitið öll hefst þetta allt á föstudaginn, það  er mæting
 í Kiwanis(enn á sama stað og 1986:d) kl 19. Þá er ætlast til að þið mætið í sparifötunum ,síðkjólar og kjólföt ekki nauðsynleg en allavega að vera í hreinum naríum og sokkum:haha: (
Þá er meiningin að borða góðan mat og skemmta sér fram eftir nóttu,athugið að þeir sem mæta seint í matinn, fá hann kaldann!!!!
Á laugardeginum fáum við að sofa frameftir, og er mæting við Kiwanis kl 16.  Þá er að sjálfsögðu ætlast til að þið mætið klædd eftir veðri, alls ekki í sparigallanum frá kvöldinu áður, (og alls ekki naríunum og sokkunum frá kvöldinu áður (ojoj) )þá hefst þessi óvissuferð þeirra Geirs og Kristleifs ( ó mæ god)  síðan verður grillað oní okkur og skemmt sér fram eftir.
Athugið að það sem þið ætlið að innbyrða af vökva þessa helgi, sjáið þið sjálf um koma með.
Síðan á sunnudeginum tekur við sigling um Atlantshaf fyrir ykkur ofan af Íslandi, en við Eyjamenn munum hafa það náðugt í landi. :haha:
Hlökkum til að sjá ykkur
Nefndin

» 16 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:08:14 / eyjar69

Fundur

Fundur í nefndinni annað kvöld(þriðjudag) kl 20, heima hjá Lilju(uppi í Ozio)
Allir að mæta, líka þeir sem hingað til hafa ekki nennt að mæta:lol:

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 20:46:54 / eyjar69

hvað koma margir

jæja nú verðum við að fá staðfestingu
hvað margir koma upp á mat að gera vinsamlega staðfestið með því að kommenta

» 15 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 11:54:13 / eyjar69

Fundarboð

Fundur hjá mér annað kvöld,fimmtudag kl 8
Allir að mæta
Erla

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 12:10:33 / eyjar69

Kveðja frá Rúnari Inga


Já þar sem ég kemst ekki þetta árið 8)  vegna skólagöngu í Danmörku. Þá vil ég allavega óska ykkur alls hins besta á árgangsmótinu.  

Einum sem langar að vera með :$:lol:



» 5 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 14:29:29 / eyjar69

Eru ekki allir komnir í stuð?

Jæja, þá er fólk farið að borga, en þið sem eiga eftir að borga , drífið nú í því.áður en þið eyðið peningnum í vitleysu:lol:
Ef þið vitið um einhverja sem hafa ekki aðgang að tölvu, þá látið þá endilega vita númerið á reikningnum okkar, og reynið nú að vera soldið drífandi og ýta á fólk að koma á mótið, við erum enn ekki orðin nógu gömul til að nota svona afsökun :Nei, ég er svo upptekin, eða nei, gigtin er að drepa mig!!:evil:
Og eru ekki fleiri sem eiga myndir sem hægt er að setja inn á síðuna,   hhvvaaa.... átti enginn myndavél í denn? 
Reynið nú að vera soldið lifandi og láta heyra í ykkur,  held meira að segja að tölvan hjá Kristeifi sé biluð.  allavega heyrist ekkert í honum:d hvernig gengur undirbúningur óvissuferðarinna ha?
Hvernig er með strákana sem vinna við tölvur allann daginn, Basti, Hjalti Pálma, Lúðvík,Óskar Sveinn, og fl. á ekkert að láta heyra í sér?
svo er ég nú búin að kíkja á heimasíður hjá nokkrum , svo ég veit að þeir kunna á tölvur, Steini Lýðs, Kristján ´Gísla og fleiri, svo var að ég að pæla , Elliði minn, kemstu ekki í tölvu upp í ráðhúsi:d
Jæja, þá er ég bara hætt að röfla í dag, 
kv
Erla
p.s. það er spurning að gera keppni úr þessu, stelpur á móti strákum, hvort kynið er duglegra

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 22:17:37 / eyjar69

Borga, takk

Jæja, krakkar
þá er komið að því að borga á árgangsmótið.  Við ætlum að byrja föstud. 5.sept. og hittast milli 3 og 5 í Kiwanis, svona rétt til að sýna okkur og sjá hina. Eins og þið eigið að vita kostar 8000.- á kjaft. og nú þarf að borga.
reikningsnúmerið er  1167-26-2195,    kt 100469-5619
svo upp með veskið. ef þið hafið ekki borgað mjög bráðlega hringjum við alveg kolvitlaus í ykkur , hehe
Svo skuluð þið endilega fara að taka vítamín og reyna að styrkja ónæmiskerfið því að við höfum ákveðið að Basti, Finnbogi og Gestur sjái um að grilla oní okkur á laugardagskvöldið:$    Þið kunnið að grilla , strákar, er það ekki?
Ef þið hafið svo einhverjar hugmyndir að skemmtiatriðum þá er ykkur alveg velkomið að koma þeim á framfæri.  Sá á myndunum að strákarnir dönsuðu geggjað flott á síðasta móti, :þ
Látið svo endilega  í ykkur heyra.
         

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 11:05:34 / eyjar69

Fullt af myndum!

Sæl Öll !
Ég setti inn fullt af myndum gamlar og góðar og frá seinasta árgangsmóti.
Ég er orðin öfga spennt fyrir næsta árgansmóti enn þið ?
Endilega skráið ykkur sem flest.ég held að það sé bara stemming hjá fólki.
Ég hitti svo marga um goslokahelgina úr árgangnum sem ætluðu flestir að mæta.
Þar sem ég er orðin amma ætla ég að reyna að haga mér ekki eins og 19 ára
Hlakka til að sjá ykkur öll !
Kveðja
Gréta.:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 21:14:18 / eyjar69

Hæ hæ

Nú ætla ég að taka stjórnina í mínar hendur , og boða fund annað kvöld kl 20 heima hjá mér, nú verðum við að kýla á að skipuleggja restina, það er orðið  gasa stutt í árgangsmótið .
Ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá látið þær flakka hér á síðunni eða að senda mér póst, læt svo vita hvað við ákváðum á fundinum.
þeir sem geta mæta annað kvöld.
kv Erla Gísla

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 23:01:23 / eyjar69

Ein Gömul og góð


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 01:39:37 / eyjar69

Hva ?

Hverjum dettur það í hug að ég , Erla Gísla ætli að mæta á fund á Týsgötu!!!!!!
Ég læt sko ekki sjá mig á þeirra a.... götu , en ef einhverjir vilja hitta mig þá er ég á Þ'ORSGÖTU
einu almennilegu götunni. hehe
Hvernig er með þessa þarna upp á landi, er ekki kominn tími á ykkur að blogga soldið?
látið nú endilega heyra í ykkur greyjin mín, hér er allt að komast á fullt fyrir þjóðhátíðina, fastur liður hjá manni að rúnta inn í Dal og kíkja á hvernig gangi, fer að mála þjóðhátíðarbekkina núna um helgina, og þeir verða sko ekki grænir!!!!
ég er löngu búin að kaupa miða , miðinn minn er númer 5, og geri aðrir betur, ég ætla sko að komast í Dalinn , hehe
læt þetta duga í nótt,
kv Erla Gísla Valla Snæ

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1240 dögum
Árgangsmót árgerðar 69 í Vestmannaeyjum hefst
Dagsetning
28. janúar 2012
Leitarbox